· Heim á upphafssíðu
· Loftslagsbreytingar
· Umhverfismál
· Sjálfbær efnahagsþróun
· Heimskautsráðið
Norður3 er styrkt af sendiráðum Kanada á heimskautasvæðum í samvinnu við IISD. Heimsæktu endilega heimasíður okkar!
Sendiráð Kanada:
· á Íslandi
· í Rússlandi
· í Finnlandi
· í Svíþjóð
· í Noregi
· í Danmörku
· Kanada og norðurheimskautssvæðin
2007-2008 er alþjóðlegt heimskautsár með víðtækri áætlun um vísindarannsóknir á norðurslóðum. Alþjóðlega heimskautsárið veitir okkur einnig tækifæri til að fjalla um heimskautssvæðin og huga að því til hvaða ráðstafana við ættum að grípa til að tryggja bjartari framtíð í sameiginlegum heimkynnum okkar í norðri.
Áður fyrr voru boðskipti um víðáttumikil norðursvæðin mjög hægfara og erfið. Nú á dögum auðveldar Internetið okkur að skiptast á reynslu og skoðunum. Með því að kynnast hvert öðru getum við stuðlað að þróun norðurslóðanna okkar og eflst.
Þótt norðurhjarinn sé víðáttumikill er hann ekki samsafn af einangruðum svæðum. Hann er ein samstæð heild sem sérhver norðurbúi deilir með öllum öðrum sem búa í norðri.
Norðurbúar deila sameiginlegu umhverfi og standa frammi fyrir mörgum sameiginlegum verkefnum hvar sem þeir búa. Slíkum verkefnum er unnt að sinna með virkari hætti ef þjóðir vinna saman en ef þær vinna að málum hver fyrir sig.
Þörf er fyrir alþjóðlega samvinnu til að takast á við loftslagsbreytingar og umhverfismengun sem virðir ekki landamæri þjóða. Það kemur öllum norðurbúum til góða þegar þjóðir skiptast á upplýsingum um sjálfbæra efnahagsþróun og aðra heillavænlega starfsemi.
Heimskautsráðið var stofnað 1996 til að stuðla að alþjóðlegri samvinnu í málefnum norðurhjarans. Þjóðirnar átta, sem eiga land á heimskautasvæðinu, eiga fulltrúa í ráðinu. Auk þess er málum háttað í heimskautsráðinu með einstæðum hætti, með beinni aðild frumhyggja á norðurslóðum, þ.e. þjóða sem hafa búið á norðurslóðum í margar aldir. Sex samtök frumbyggja eru fastir þátttakendur í Heimskautsráðinu.
Heimskautsráðið hefur komið á fót sex starfshópum til að fjalla um ýmis mikilvæg verkefni. Starfið snýst m.a. um:
Heimskautsráðið er öflugur vettvangur til að stuðla að samvinnu á heimskautssvæðinu og hjálpa til að bæta félagslegar, efnahagslegar og umhverfislegar aðstæður.