Vafri

· Heim á upphafssíðu
· Loftslagsbreytingar
· Umhverfismál
· Sjálfbær efnahagsþróun
· Heimskautsráðið

Sendiráð

Norður3 er styrkt af sendiráðum Kanada á heimskautasvæðum í samvinnu við IISD. Heimsæktu endilega heimasíður okkar!

Sendiráð Kanada:
· á Íslandi
· í Rússlandi
· í Finnlandi
· í Svíþjóð
· í Noregi
· í Danmörku
· Kanada og   norðurheimskautssvæðin

Þetta ár

2007-2008 er alþjóðlegt heimskautsár með víðtækri áætlun um vísindarannsóknir á norðurslóðum. Alþjóðlega heimskautsárið veitir okkur einnig tækifæri til að fjalla um heimskautssvæðin og huga að því til hvaða ráðstafana við ættum að grípa til að tryggja bjartari framtíð í sameiginlegum heimkynnum okkar í norðri.

Boðskipti á heimskautssvæðinu

Áður fyrr voru boðskipti um víðáttumikil norðursvæðin mjög hægfara og erfið. Nú á dögum auðveldar Internetið okkur að skiptast á reynslu og skoðunum. Með því að kynnast hvert öðru getum við stuðlað að þróun norðurslóðanna okkar og eflst.

Norður3 »

  » Norðrið þitt er norðrið mitt er norðrið okkar

Vinsamlega gefðu þér smá stund til að kynnast helstu stefnumálum og áherslum þessarar vefsíðu sem er fyrir ungt fólk á norðurslóðum.

Segðu okkur hvað þér finnst

Efst á jörðinni er svæði sem er fullt náttúruundrum, ríkri menningu og gríðarlegum auðæfum. Það er norðrið. Þar býr fjöldi fólks við aðstæður sem eru einstaklega krefjandi.

Íbúar norðurhjarans hafa alltaf orðið að kljást við langar vegalengdir og óblítt veðurfar. Undanfarnar kynslóðir hafa tekist á við ný viðfangsefni. Menn eru farnir að gera sér grein fyrir mikilvægi þess að vernda einstæða menningu og lífshætti norðurbúa. Fólk er einnig farið að huga meira að umhverfisvernd, sjálfbærri efnahagsþróun og aðgengi að heilsugæslu og fræðsluþjónustu. Nú á dögum er mikið rætt um loftslagsbreytingar.

Sérhver norðurbúi hefur öðlast sérstæða reynslu. Með því að fræða aðra um hana geta norðurbúar fræðst meira um það svæði þar sem þeir búa. Þeir geta einnig frætt heimsbyggðina um vonir sínar og drauma, svo og þau verkefni sem við þeim blasa á heimskautssvæðinu.

Vinsamlega segðu okkur frá lífi þínu og hvernig er að búa á norðurslóðum. Smelltu hér til að segja okkur hvað þér finnst.