Vafri

· Heim á upphafssíðu
· Loftslagsbreytingar
· Umhverfismál
· Sjálfbær efnahagsþróun
· Heimskautsráðið

Sendiráð

Norður3 er styrkt af sendiráðum Kanada á heimskautasvæðum í samvinnu við IISD. Heimsæktu endilega heimasíður okkar!

Sendiráð Kanada:
· á Íslandi
· í Rússlandi
· í Finnlandi
· í Svíþjóð
· í Noregi
· í Danmörku
· Kanada og   norðurheimskautssvæðin

Þetta ár

2007-2008 er alþjóðlegt heimskautsár með víðtækri áætlun um vísindarannsóknir á norðurslóðum. Alþjóðlega heimskautsárið veitir okkur einnig tækifæri til að fjalla um heimskautssvæðin og huga að því til hvaða ráðstafana við ættum að grípa til að tryggja bjartari framtíð í sameiginlegum heimkynnum okkar í norðri.

Boðskipti á heimskautssvæðinu

Áður fyrr voru boðskipti um víðáttumikil norðursvæðin mjög hægfara og erfið. Nú á dögum auðveldar Internetið okkur að skiptast á reynslu og skoðunum. Með því að kynnast hvert öðru getum við stuðlað að þróun norðurslóðanna okkar og eflst.

Norður3 »

  » Sjálfbæra efnahagsþróun

Með góðum áætlunum og vandlegri stjórnun getur starfsemi á norðurslóðum, svo sem námuvinnsla og jarðboranir, styrkt samfélögin og veitt mönnum atvinnu til lengri tíma.

Meginatriði við áætlanagerð og stjórnun er hugtakið sjálfbær þróun. Hugtakið felur í sér nákvæmt mat á atvinnustarfsemi til þess að ganga úr skugga um áhrif hennar á umhverfið, atvinnustig og samfélagið.

Nokkrar spurningar, sem ber að spyrja, eru þessar:

Markmið sjálfbærrar þróunar er að tryggja að hún mæti núverandi þörfum án þess að stofna kynslóðum framtíðarinnar í hættu? Með virku eftirliti og stjórnun er unnt að tryggja að efnahagsþróunin komi íbúum norðurslóða til góða.