· Heim á upphafssíðu
· Loftslagsbreytingar
· Umhverfismál
· Sjálfbær efnahagsþróun
· Heimskautsráðið
Norður3 er styrkt af sendiráðum Kanada á heimskautasvæðum í samvinnu við IISD. Heimsæktu endilega heimasíður okkar!
Sendiráð Kanada:
· á Íslandi
· í Rússlandi
· í Finnlandi
· í Svíþjóð
· í Noregi
· í Danmörku
· Kanada og norðurheimskautssvæðin
2007-2008 er alþjóðlegt heimskautsár með víðtækri áætlun um vísindarannsóknir á norðurslóðum. Alþjóðlega heimskautsárið veitir okkur einnig tækifæri til að fjalla um heimskautssvæðin og huga að því til hvaða ráðstafana við ættum að grípa til að tryggja bjartari framtíð í sameiginlegum heimkynnum okkar í norðri.
Áður fyrr voru boðskipti um víðáttumikil norðursvæðin mjög hægfara og erfið. Nú á dögum auðveldar Internetið okkur að skiptast á reynslu og skoðunum. Með því að kynnast hvert öðru getum við stuðlað að þróun norðurslóðanna okkar og eflst.
Vindar og straumar Norður-Íshafsins tengja saman löndin á norðurslóðum. Lofstraumar og hafstraumar, svo og fljót, tengja einnig norðursvæðin við suðrið. Skaðleg mengunarefni geta borist með loftinu eða í vatni. Því miður eru víðáttumikil landflæmi norðurhjarans ekki varin fyrir umhverfismengun þótt þau séu afskekkt.
Óviðeigandi förgun kemískra efna á norðurslóðum veldur umhverfismengun. Vandinn er meiri vegna mengunarefna úr suðri sem berast norður á bóginn með vindum, fljótum og sjávarstraumum. Hættuleg kemísk efni berast í skepnur og jurtir og verða hluti af fæðukeðjunni. Mengunarefni geta safnast fyrir í fituvefjum dýra á norðurslóðum. Slík skaðleg efni hafa síðan áhrif á menn sem éta þessi dýr.
Þörf kann að vera fyrir nokkrar breytingar á lífsháttum norðurbúa til að forðast heilsufarslega hættu af völdum mengunarefna í umhverfinu. Annað skref er að heimsbyggðin sameinist um að draga úr umhverfismengun. Þörf er fyrir gerð alþjóðlegra samninga um mengunarefni sem endast lengi í náttúrunni. Með því móti væri unnt að hefta mengunarefnin þar sem þau myndast áður en þau berast að sunnan með vindum og sjávarstraumum til norðurslóða.